6 Kría lítur upp og pírir augun til að reyna að sjá það sem Sóley sér. „Umm, ég held að ég sjái það. Mér finnst þetta svolítið eins og köttur … minnir á Gretti.“ „Já, algjörlega,“ svarar Sóley og bætir svo áköf við, „heyrðu, ég er alveg að verða búin með bókina. Svo mátt þú fá hana.“ „Jess! Ég er orðin svo spennt.“ Nýjasta æðið hjá þeim er að lesa teiknimyndasögur. Sóley er með glænýja manga-bók í láni sem frænka hennar keypti í útlöndum og Kría má lesa hana áður en Sóley skilar henni. Hvers vegna heldur þú að Sóley vilji lána Kríu bókina áður en hún skilar henni? „Ég sá líka að bókasafnið var að fá nýjar bækur,“ segir Kría. „Kannski eru einhverjar nýjar teiknimyndasögur.“ „Geggjað, eigum við að kíkja eftir skóla?“ „Já, ég er til,“ svarar Kría. „Æði.“ Kría verður þögul og starir … „Um hvað ertu að hugsa?“ spyr Sóley og sest upp. „Eigum við að skipta?“
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=