Viðsnúningur

5 Saman 1. kafli – júní Sóley og Kría búa í sömu götu og eru í sama bekk. Þær eru algjörar samlokur. Þær sitja hlið við hlið í skólanum, eru samferða á sundæfingar og bjóða hvor annarri í bíó og upp í bústað með fjölskyldum sínum. Þær hafa verið óaðskiljanlegar síðan þær byrjuðu í 1. bekk en núna eru þær að klára 6. bekk. Það eru hádegisfrímínútur og fótboltastelpan Hekla vill fá allan bekkinn með í skotbolta. Í hvert skipti sem veðrið er gott vilja krakkarnir í bekknum fara í boltaleik. Sóleyju og Kríu finnst hins vegar nóg að vera píndar til að vera með í íþróttatímum. Þær eru með sína eigin hefð. Þegar veðrið er gott reyna þær að ná stóru rólunni. Svo skiptast þær á að liggja í henni og ýta á meðan þær tala saman um allt milli himins og jarðar. Þær segja hvor annarri hvað hafi verið í kvöldmatinn, hvað þær sáu í sjónvarpinu, hvað þær óski sér í afmælisgjöf og hvað þær dreymir um að gera í framtíðinni. Þær hafa alltaf nóg að tala um þó þær séu sjaldan án hvor annarrar. Sóley liggur í rólunni og horfir upp í himininn. Skýin líta út eins og teiknimyndafígúrur. „Sérðu þetta ský? Það er eins og krúttlegur bangsi,“ segir hún við Kríu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=