3 Þú getur prófað að setja þig í spor persónanna – hvað þær hugsa og hvernig þeim líður – og jafnframt spurt: Hvað myndi ég gera í svona aðstæðum? Til dæmis: Hvað myndi þér finnast um að flytja til annars lands með fjölskyldu þinni? Væri auðvelt fyrir þig að kynnast nýju fólki og nýju tungumáli? Hvaða áhrif heldur þú að flutningar myndu hafa á samband þitt við vini þína? Hvernig er hægt að rækta vináttu þegar langt er á milli vina? Aftast í bókinni finnur þú þrautir sem tengjast sögunni og hjálpa þér að skoða hana frá nýju sjónarhorni. Gangi þér vel – og njóttu lestursins!
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=