Viðsnúningur

Til Þín Hvernig myndi þér líða ef uppáhaldsmanneskjan þín flytti í burtu? Kría og Sóley hafa alltaf verið óaðskiljanlegar – sannkallaðar samlokur. En stundum tekur lífið óvæntan snúning. Hvað verður um vináttu þeirra þegar þær búa skyndilega í sitthvoru landinu? Þegar Kría snýr aftur heim til Íslands er margt breytt. Hún þarf að finna sinn stað upp á nýtt – í skólanum, í tómstundum og jafnvel hjá Sóleyju. Ný andlit, nýir vinir og breyttar venjur gera heimkomuna flóknari en hún hafði ímyndað sér. Sagan fjallar um að takast á við breytingar, nýjar aðstæður og að finna sína leið þegar hlutirnir verða öðruvísi en áður. Þetta er saga um vináttu sem breytist og hvernig samband milli vina mótast og þróast með tímanum. Í bókinni birtast samlokur hér og þar með spurningum sem beint er til þín. Þær hvetja þig til að staldra við, ímynda þér og velta sögunni fyrir þér.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=