Viðsnúningur

21 Sóley hefur tekið eftir hlutum sem hún tók aldrei eftir áður. Nágranni hennar virðist til dæmis alltaf vera í sama bolnum eða eiga trilljón eins svarta boli og fuglarnir í garðinum eru ekki allir eins. Jú, þetta eru þrestir eins og skógarþrestir, gráþrestir og svartþrestir og svo fuglategund sem heitir stari. Hún fann fuglabók uppi í hillu og komst að því að þessir fuglar eru gjarnan á Íslandi allt árið um kring af því að þeir fá nóg að borða í görðum hjá fólki. Núna þegar Sóley fer á bókasafnið fær hún lánaðar bæði teiknimyndasögur og fugla- og náttúrufræðibækur. Birkir bróðir segir að Sóley sé alltof forvitin og spyrji of margra spurninga en mamma segir að það sé frábært hvað hún sé lærdómsfús. Sóley er til dæmis búin að læra að fuglinn sem hún kann að brjóta í origami-pappírsbrot er af trönuætt. Hann er mjög vinsæll í Japan af því hann lifir lengi og er talinn boða gæfu. Kannski ætti hún að búa til nokkra pappírsfugla til að senda Kríu. Lykillinn er stífur í skránni. Útidyrahurðin opnast loksins og Sóley stígur inn fyrir. Hún stígur óvart á póstinn sem hefur komið inn um lúguna og hoppar til hliðar. Hún flettir í gegnum bréfin. Þarna er gluggapóstur handa mömmu og bæklingur frá leikhúsinu en líka bréf stílað á hana, Sóleyju Verudóttur.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=