10 2. kafli – júlí Kría og Sóley eru búnar að njóta þess að vera í fríi frá sundæfingum í allt sumar en nýta engu að síður hvert tækifæri til að fara í sund, stundum með fjölskyldu og vinum og stundum bara tvær, eins og í dag. Það eru margir í kvennaklefanum. Þær finna ekki tvo lausa skápa hlið við hlið svo þær ákveða að setja fötin sín í rauðar körfur eins og þegar þær fara í skólasund. Inni í sturtuklefa stoppar sturtuvörðurinn konur sem hafa ekki þvegið sér áður en þær fóru í sundfötin. Hún segir þeim að þær verði að fara í sturtu ÁÐUR en þær klæði sig í sundfötin. Konurnar líta út fyrir að vera ferðamenn og virðast ósáttar, stelpurnar heyra sturtuvörðinn segja að það sé alveg rétt að það sé erfitt að fara í þurran sundbol þegar maður er blautur. Trixið sé að fara í blautan sundbol, sem sagt, fara í hann undir bununni. Kría gjóar augunum á Sóleyju og þarf ekkert að segja. Sóley svarar strax með svipbrigðum að hún sé sammála. Þær hafa aldrei pælt í þessu áður en þetta „meikar sens“; þær fara alltaf í sundfötin undir sturtunni. Af hverju finnst sumu fólki reglurnar skrýtnar? Hvað segir það um mismunandi venjur?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=