8 Þær skipta um stöður. Kría leggst í róluna og Sóley ýtir. „Pabbi fékk rannsóknarleyfið,“ segir Kría. „Ha! Fyrir London?“ Sóley stoppar róluna skyndilega og hallar sér yfir Kríu til að sjá framan í hana. „Já, hann fær að rannsaka við einhvern háskóla nálægt London. Við förum í haust.“ „En bara í eitt ár, er það ekki?“ spyr Sóley. „Jú.“ Hvað veist þú um London? „Ókei, gott. Þú verður þá komin áður en við byrjum í unglingadeildinni!“ Sóley andar léttar og byrjar að ýta rólunni aftur. Fram og aftur. Svo er eins og Sóley átti sig almennilega á því hvað Kría var að segja og hún fær sting í magann. Eitt ár. Það eru þrjúhundruð sextíu og fimm dagar. Það er ógeðslega langur tími til að vera án Kríu. „Vá, þetta verður ævintýri hjá þér,“ segir hún eftir smá þögn. „Rauðir strætóar og kóngafólk og eitthvað.“ Kría hlær. „Já, alveg eins og í einhverri bíómynd.“ Þær þegja aftur.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=