Previous Page  160 / 164 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 160 / 164 Next Page
Page Background

Orðskýringar

A

Skýringar

A-snið

flokkur staðlaðrar pappírsstærðar þar sem hlutfallið milli lengri og styttri hliðar pappírsins er

ferningsrótin af 2

aðfella

bein lína sem graf falls nálgast; fjarlægðin milli línunnar og grafsins nálgast 0

afborgun

þegar lán er greitt til baka er lánsupphæðinni skipt í minni hluta sem kallast afborganir

algebrísk lausn

samheiti yfir að leysa jöfnur með reikningi, til dæmis með innsetningar- eða samlagningaraðferðinni

annars stigs fall

fall á forminu f(x) = ax

2

+ bx + c þar sem a, b og c eru fastar (tölur) og x er breyta; a er ekki 0

annars stigs jafna

jafna á forminu ax

2

+ bx + c = 0 þar sem a, b og c eru fastar, b og c geta verið 0 en

a getur ekki verið 0

B

botnpunktur

punktur á grafi falls sem hefur lægra fallgildi en allir punktar í nágrenninu, sama og lægsti punktur

bókhald

skráning allra tekna og gjalda á ákveðnu tímabili eftir að tekna hefur verið aflað eða gjöldin greidd

breiðbogi

ferill breiðboga greinist í tvo aðskilda óendanlega hlutferla sem eru spegilmyndir hvor annars,

graf öfugs hlutfalls er dæmi um breiðboga

breytiþáttur

stærð sem notuð er til að reikna út hve mikið eitthvað hækkar eða lækkar á ári; breytiþátturinn

1,12 merkir 12% aukningu á ári

brotabrot

almennt brot þar sem teljarinn eða nefnarinn eða bæði teljari og nefnari innihalda almenn brot

brúttóflatarmál

flatarmálið í heild áður en einhver hluti af því fer í annað, til dæmis innréttingar

brúttólaun

laun áður en skattur og annar frádráttur er dreginn af

D

dráttur

í líkindareikningi: að draga blindandi og af handahófi kúlu, spilapening, kubb eða annað úr safni

slíkra hluta

E

endurtekinn dráttur

í líkindareikningi: ef maður leggur aftur í poka, kassa eða annað það sem maður hefur dregið

þannig að aðstæðurnar verða eins og þær voru áður en dregið var; þetta kallast að draga með

endurtekningu

eftirmynd

fyrir hvern punkt á eftirmyndinni er samsvarandi punktur á frummyndinni

einslaga

tvær þríhyrningslaga myndir eru einslaga ef þær hafa tvö og tvö jafn stór horn

eins punkts fjarvídd hefur sjónlínu og einn hvarfpunkt

empírísk gögn

gögn sem eru fengin í tilraunum, úr reynslu af eða athugunum á raunveruleikanum

F

fallgildi

gildið á y-ásnum

fallstæða

algebrustæða sem lýsir falli

fjarvíddarteikning

aðferð til að sýna þrívíðan hlut á tvívíðum fleti þannig að fram komi dýptaráhrif í myndina

formengi

mengi allra x-gilda sem fall gildir fyrir

fleygbogi

graf annars stigs falls

formúlureikningur

að nota formúlu sem jöfnu og leysa hana út frá stærðinni sem finna skal

fylliatburðir/fyllimengi

atburða

tiltekinn atburður og fylliatburður hans eru til samans allir mögulegir atburðir, atburður og fylli-

atburður hans geta ekki gerst samtímis, summa líkinda fyrir atburðinn og fylliatburð hans er 1.

fyrsta ferningsreglan (a + b)

2

= a

2

+ 2ab + b

2

G

grafísk lausn á annars

stigs jöfnu

aðferð til að leysa jöfnu með því að teikna graf annars stigs falls og finna skurðpunktinn milli

grafsins og x-ássins

grafísk lausn á

jöfnuhneppi

aðferð til að leysa jöfnuhneppi með því að teikna gröf línulegu jafnanna og finna skurðpunkt þeirra

gullinsnið

þegar skipting striks er þannig að lengri hluti þess stendur í sama hlutfalli við styttri hlutann og

strikið í heild stendur við lengri hlutann, hlutfallið er ≈ 1,618

Skali 3A

158