89 Tíu mínútum seinna Jæja, nú er ég komin með fast land undir fætur og er aðeins að líta á kortið mitt. Þarna er Esjan og það er merkt inn að þar sé flugvöllur, hann er í efra vinstra horninu á kortinu. Til að komast þangað þarf ég að fara í gegnum Reykjavík. Þar er fullt af fólki, ég hef aldrei séð svo margt fólk á einum stað. Hádegi daginn eftir Jæja, loksins er ég komin upp á Esjuna og þarna er flugvöllurinn. Úff, hann er svolítið draslaralegur, en það er allt í lagi, ég þarf ekkert að pæla í því. Ég er bara að stoppa hérna stutt og fljúga svo til Ægrantíu. Núna má ég ganga inn í flugvélina en hún er rosalega skrýtið farartæki og kolryðguð. Ég er smá smeyk við að fara hingað inn. Váááá, flugið tekur alveg þrjá klukkutíma, best að ég sofi bara alla ferðina. Fjórum klukkutímum seinna Núna er ég komin til Ægrantíu og er að leita að Vestra. Æjj æjj, ég veit ekki í hvaða átt vestur er. Ég verð þá bara að biðja um aðstoð. Afi sagði mér að ef tröll ætlaði að biðja einhvern um aðstoð, þá gæti verið gott að leita til einhvers sem gæti litið út fyrir að vera mamma trölls. „Halló, værir þú til í að segja mér í hvaða átt vestur er?“ „Þessa átt, takk.“ Þetta var fyndin kona, hún var mjög græn og minnti á mömmu Minnu vinkonu minnar. Tveimur tímum seinna „VESTRI, VESTRI?! Úff, eins gott að ég fann þig, ég er búin að leita að þér í allan dag og var næstum búin að gefast upp. Ég var að leita að þér vegna þess að ég vil að þú náir aftur í hornið
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=