63 Ég lendi á gólfinu í herberginu mínu. Það heyrist hátt brothljóð þegar spegillinn brotnar og brotunum rignir yfir mig. Síðan verður allt svart. Næsta morgun er allt venjulegt fyrir utan það að spegillinn er horfinn. Þetta var örugglega bara martröð, hugsa ég. Allt í einu sé ég glitta í eitthvað á náttborðinu mínu, þegar ég skoða það nánar sé ég að þetta er brot úr speglinum en ég sé ekki sjálfa mig í honum heldur lítinn strák með dökkbrúnt hár og ísblá augu. Ó nei, þetta var ekki draumur, hugsa ég. ENDIR
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=