EMMA, ÍSBJÖRNINN OG FJÓLUBLÁA SKÓFLAN VALDÍS EIR ÓSKARSDÓTTIR, 9 ÁRA Hæ! Ég heiti Emma og í dag ætla ég að segja ykkur sögu. Þetta gerðist allt fyrir fimm árum þegar ég var fjögurra ára gömul. Ég var svona þúsund sinnum búin að biðja mömmu mína og pabba um að við færum í útilegu og að lokum létu þau það eftir mér. Pabbi vildi leigja hjólhýsi en mamma vildi frekar að við svæfum í tjaldi til þess að við værum meira út í náttúrunni. Mömmu finnst útivist svo góð fyrir heilsuna og eitthvað svoleiðis. Þau rökræddu um þetta í svona korter og loks var tekin ákvörðun um að vera í tjaldi. Mamma fær alltaf sínu framgengt. „Við leggjum af stað á morgun,“ sagði pabbi frekar pirraður eftir að hafa tapað fyrir mömmu. Ég var búin að bíða spennt eftir því að fara í ferðalagið, alveg þangað til pabbi sagði að við þyrftum að keyra í sex klukkutíma! Þau ákváðu nefnilega að það væri góð hugmynd að fara á Hvalnes og tjalda í garðinum við sumarbústaðinn hjá Jóhannesi frænda mínum. Ég þoli ekki að vera svona lengi í bíl! Mér datt þess vegna í hug að spyrja mömmu hvort ég mætti vera í símanum hennar á leiðinni. „Nei, þú verður örugglega bílveik,“ sagði mamma. „Æi, í alvöru? Stundum vill maður bara hafa smá gaman,“ svaraði ég frekar pirruð. Ég spurði þá pabba hvort ég mætti vera í símanum hans. „Talaðu við mömmu þína ég er upptekinn að hlusta á ósvikið ROKK, ekkert barnabrokk,“ sagði pabbi. Þetta var nýjasti pabbabrandarann hans. 4 Smásaga ársins 6–9 ára 20 26
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=