nextup1_nem

NEXT UP! 1 242 Háttarsögn (Modal auxiliary verbs) Háttarsagnir eru meðal annars notaðar til þess að tjá möguleika, leyfi, skyldu, getu, áform og vilja. Þessar sagnir hafa áhrif á merkingu aðalsagnarinnar. Eftirfarandi hjálparsagnir finnast: can, could, may, might, must, shall, should, will, would, ought to Háttarsagnir hafa aðeins eina mynd, óháð frumlagi, og þeim fylgir alltaf nafnháttur. He may sit here. She should visit her grandparents. It will get better. Þolmynd (Passive voice) Í setningu í germynd framkvæmir frumlagið í setningunni aðgerðina: S V Mary painted the house this summer. Í setningu í þolmynd framkvæmir frumlagið ekki aðgerðina, heldur verður frumlagið fyrir aðgerðinni: S V The house was painted this summer by Mary. Sá sem framkvæmir aðgerðina getur komið fyrir í setningunni (… by Mary). Þá notum við alltaf forsetninguna by til að segja til um hver framkvæmir. Það er ekki alltaf mikilvægt að það komi fram hver framkvæmir aðgerðina. Ef svo er ekki, sleppum við þeim lið: English is spoken here. Books are sold in the bookstore. Þolmynd sagnorða er algengari í ensku heldur en íslensku.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=