243 REFERENCE SECTION Nafnorð (Nouns) Nafnorð eru orð sem tákna persónur, staði, hluti og dýr. Óhlutbundin orð, eins og til dæmis hugsun, eru líka nafnorð. Nafnorð skiptast í sérnöfn (proper nouns) og samnöfn (common nouns). Regluleg beyging Fleirtala flestra nafnorða er mynduð með því að bæta -s aftan við orðið: room – rooms book – books Flest orð sem enda á s-hljóði (blísturhljóði) fá -es endingu. Það er að segja orð sem enda á -s, -ch og -sh: class – classes watch – watches dish – dishes Ef orð enda á samhljóða og y breytist y í i + -es í fleirtölu: lady – ladies country – countries Nokkur nafnorð sem enda á -o í eintölu fá -es endingu í fleirtölu: hero – heroes potato – potatoes Dæmi um undantekningar: Við orðin piano, photo og radio bætist -s við endinguna: pianos, photos, radios 2
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=