nextup1_nem

241 REFERENCE SECTION Framtíð (Present future) Framtíð fjallar um eitthvað sem mun gerast. Hér eru tvær leiðir til að mynda framtíð: • will + nafnháttur Þetta notum við um eitthvað sem mun gerast, óháð því hvort það var skipulagt eða ekki. I will see you next week. It will rain tomorrow. • be going to + nafnháttur: Þetta gildir um eitthvað sem við höfum ákveðið að gera eða erum að hugsa um að gera: I am going to clean my room on Friday. We are going to rent a house on the coast this summer. Boðháttur (Imperative) Boðhátt notum við þegar við gefum skipanir, hvetjum eða leiðbeinum. Við myndum boðhátt með nafnhætti sagnarinnar án nafnháttarmerkisins to: Eat! Sit down! Come here! (skipun) Please come in and sit down. (hvatning) Take a left and then a right. (leiðbeiningar) Neitunarsetningar verða til með því að setja Do not fyrir framan sagnorðið: Do not boil the potatoes too long. Hjálparsagnir (Auxiliary verbs) Hjálparsagnirnar to be, to have og to do eru oftast notaðar til þess að móta tíðir sagnorðanna: I am helping you. I was helping you. He has done his homework. He had done his homework. Do you play football? Did you play football?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=