NEXT UP! 1 240 Samsett þátíð (Past continuous) Samsett þátíð er oft notuð til að lýsa athöfn sem var í gangi þegar eitthvað annað gerðist. Samsett þátíð myndast með þátíð hjálparsagnarinnar to be + aðalsögnina með-ing- aftan við. I was taking a shower when the phone rang. While Jenny and Rick were making dinner, the dog ran away. Það sem gerðist á meðan er túlkað með sögn í þátíð. (rang, ran). Annars notum við samsetta þátíð til að fjalla um tvo atburði sem gerðust samtímis, eða til að sýna fram á að atburður varir í einhvern tíma: Mum was sleeping while I was doing the dishes. (atburðir sem gerast samtímis) We were playing video games all afternoon. (atburður varir í einhvern tíma) Núliðin tíð (Present perfect) Núliðin tíð segir frá einhverju sem hefur gerst. Núliðin tíð myndast með hjálparsögninni to have + lýsingarhætti þátíðar af aðalsögninni: She has played football. We have seen the film. Öll regluleg sagnorð eru eins í lýsingarhætti þátíðar og þátíð (enda á -ed), en óreglulegu sagnorðin fylgja ekki þessari reglu og best er að læra þau utan að. We have bought a horse. I have swum in the sea. Sjá lista með óreglulegum sagnorðum á blaðsíðu 238.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=