Menntun til sjálfbærni

3. KAFLI Menntun til sjálfbærni – í skólastofunni 65 Sameinuðu þjóðirnar hafa nefnt Grænfánaverkefnið sem helsta innleiðingartæki fyrir menntun til sjálfbærni í heiminum. Grænfáninn er útbreiddasta viðurkenning sinnar tegundar í heiminum og er haldið úti af samtökunum Foundation for Environmental Education (FEE). Víðs vegar um heiminn taka núna um 59 þúsund skólar í 74 löndum þátt í verkefninu og á Íslandi um 200 skólar á öllum skólastigum, frá leikskóla og upp í háskóla en einnig vinnuskólar og félagsmiðstöðvar. Hérlendis er verkefnið rekið af umhverfis- verndarsamtökunum Landvernd. Grænfáninn er dreginn að húni í þeim skólum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum og er tákn um árangursríka menntun til sjálfbærni og umhverfisstefnu í skólum. Skólar í verkefninu þurfa að ganga í gegnum sjö skref í átt að aukinni umhverfisvitund og sjálfbærni. Sérfræðingar Landverndar veita bæði aðstoð og eftirlit með starfseminni og miðlar af mikilli þekkingu og reynslu um verkefni, kennsluefni og kennsluaðferðir til þátttökuskóla. Grænfánaverkefnið veitir þar með svör við óskum kennara um markvissa og faglega aðstoð, stuðning, hvatningu, verkefni og kennsluefni og er þar með mikilvæg leið fyrir skóla til að vinna eftir skilgreiningum aðalnámskrár. Það er sem sagt til tæki og tól – Grænfánaverkefnið – sem auðveldar skólum heildstæða innleiðingu á menntun til sjálfbærni og leiðir og hvetur skólana áfram á þessari vegferð. Í úttekt sem var gerð til að kortleggja stöðuna á Norðurlöndum í tengslum við innleiðingu á Heimsmarkmiði 4.7 um menntun til sjálfbærni voru m.a. tveir Grænfánaskólar til skoðunar. Niðurstöður verkefnis leiddu m.a. í ljós að menntun til sjálfbærni í þessum tveimur skólum er orðin hluti af daglegu skólastarfi og komin á nokkurs konar sjálfstýringu sem sýnir hvað skólarnir eru komnir á græna grein með sjálfbærnimenntun og hversu vel Grænfánaverkefnið virkar. Grænfánaverkefnið byggir á hugmyndafræði menntunar til sjálfbærni eins og fjallað er um í kafla 2.6. Nemandinn er í brennidepli þannig að aðferðirnar eru mjög þátttökumiðaðar og einnig fjölbreyttar og þverfaglegar. Þetta er valdeflandi nálgun og nemendur eiga að fást við raunverulegar áskoranir sem eru bæði tengdar við þeirra eigið líf, skólann og síðan nærsamfélagið. Jafnframt eru málin tengd við hnattrænar áskoranir og hnattræn vitund er þjálfuð. Staða mála er metin, gildi og viðhorf eru skoðuð með gagnrýninni hugsun og nemendur eru hvattir til að hugsa út fyrir rammann á skapandi hátt og hafa áhrif á breytingar, helst kerfisSameinuðu þjóðirnar hafa nefnt Grænfánaverkefnið sem helsta innleiðingartæki fyrir menntun til sjálfbærni í heiminum. Grænfáninn er dreginn að húni í þeim skólum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum og er tákn um árangursríka menntun til sjálfbærni og umhverfisstefnu í skólum. Grænfánaverkefnið eflir getu nemenda og starfsfólks til aðgerða.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=