Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

18 SVARAR SPURNINGUM Já, Hulda, það gæti alveg gerst. Brjóst eru auðvitað gríðarlega mismunandi, flöt, hnöttótt, stinn, mjúk og svo framvegis og þau stækka líka mishratt. Þau geta haldið áfram að stækka þar til þú ert orðin 21 árs og jafnvel lengur. Kynfræðingurinn ERLA Píkur eru allskonar, alveg eins og nef, eyru og aðrir líkamshlutar. Það er jafn eðlilegt að vera með áberandi innri skapabarma og innri skapabarma sem eru varla sýnilegir. Hefur þú hugsað um hvers vegna þér finnast innri skapabarmarnir of stórir? Miðað við hvað þá? Kynfræðingurinn Snípurinn er ótrúlega næmur. Hann leikur yfirleitt stórt hlutverk þegar kemur að sjálfsfróun hjá þeim sem eru með sníp en ein leið til að fróa sér er að nudda snípinn. Grindarbotnsvöðvarnir geta líka vakið unað – en með því að spenna og slaka á grindarbotnsvöðvunum eykst blóðflæðið og kynfærin örvast. Sumum finnst líka gott að nudda legopið eða fara með fingur inn í leggöngin. Brjóstin geta verið mjög næm og þá sérstaklega geirvörturnar. Og ekki er allt upp talið – því sum örvast við gælur á hálsi eða maga á meðan önnur geta fengið fullnægingu við það eitt að hugsa um eitthvað kynæsandi. Hver líkami er einstakur og ef þig langar þá getur þú prófað þig áfram til að læra á þinn líkama og þig sem kynveru. Það er jafn eðlilegt að langa að fróa sér og að hafa engan áhuga á því. Þörf og áhugi á sjálfsfróun er mjög einstaklingsbundin. SJÁLFSFRÓUN AGNIESZKA Útferð er þetta gulhvíta límkennda sem þú finnur oft í nærbuxunum þínum eftir að kynþroskinn hefst. Þetta er bara aðferð líkamans við að halda píkunni rakri og heilbrigðri. Útferðin breytist þegar líður á tíðahringinn. Fjórum til fimm dögum eftir að blæðingum lýkur verður hún glær og teygjanleg. Hún getur líka orðið svolítið lyktarsterk, en það er alveg eðlilegt. Ef þú hefur haft samfarir án þess að nota smokk og útferðin skiptir um lit eða lykt skaltu spjalla við lækni eða hjúkrunarfræðing, því þú gætir hafa smitast af kynsjúkdómi. Kynfræðingurinn ,,Hvað er útferð?“ KYNFRÆDINGUR HULDA FYRIR HEILSUNA, HAMINGJUNA OG SJÁLFSPEKKINGUNA - „Mér finnst brjóstin á mér hafa stækkað svo lítið þó að ég sé orðin kynþroska. Gætu þau átt eftir að stækka meira?“ ,,Mér finnast innri skapabarmarnir mínir allt of stórir. Get ég eitthvað gert í því?“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=