Rétt fyrir innan leggangaopið er teygjanleg slímhimnufelling. Það getur verið erfitt að sjá hana með berum augum, því hún getur verið glær, fölbleik eða ljós, stór eða lítil. Himnan getur líka verið allskonar í laginu, til dæmist eins og kleinuhringur eða hálfmáni. Hún getur hulið leggangaopið að stórum hluta, svolítið eða alls ekki. Þessi litla slímhimnufelling kallast meyjarhaft. Hér áður fyrr var talið að meyjarhaftið rofnaði við fyrstu samfarir og að þá blæddi alltaf úr því. Þannig var talið að órofið meyjarhaft sannaði að stúlka eða kona hefði ekki haft samfarir og væri þannig „hrein“ mey. Þetta er bull. Meyjarhaftið er teygjanlegt og það getur brotnað niður á kynþroskaskeiði. Þegar eitthvað fer inn í leggöngin geta myndast rifur í himnunni og það getur blætt úr þeim. Þannig rifur gróa yfirleitt á sólarhring eða svo. Það er ekki hægt að sjá á meyjarhaftinu hvort manneskja hafi notið kynlífs eða ekki. Alveg eins og það er ekki hægt að skoða typpi og sjá hvort eigandi þess hafi stundað kynlíf. Enda er það einkamál og enginn á rétt á því að gera lítið úr öðrum fyrir það eitt að hafa notið kynlífs. MEYJARHAFTID Ef þú ert með píku væri ekki úr vegi að kynnast henni betur. Það getur hjálpað þér að skilja líkama þinn og styrkt sjálfsöryggi. Finndu rólegan stað þar sem þú hefur næði og getur slakað á. Spegill getur hjálpað þér að sjá hvernig kynfærin líta út. • Skoðaðu kynfærin með fæturna saman og síðan í sundur. Taktu eftir hvernig útlitið breytist eftir líkamsstöðu. • Skoðaðu ytri skapabarmana og húðina sem snýr inn. Hún er oft mjúk og glansandi. • Þú getur prófað að spenna og slaka á grindarbotnsvöðvum og fylgst með hreyfingunni. • Snípurinn er mjög næmur hluti líkamans og gegnir hlutverki í kynferðislegri ánægju. Líkamar eru mismunandi og það er ekkert eitt „rétt“ útlit. Að kynnast eigin líkama snýst fyrst og fremst um að skilja hann og virða. MÝTAN UM - SJÁLFSSKODUN - 17
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=