15 Fyrir trans börn og ungmenni er félagsleg kynstaðfesting mjög mikilvæg. Þá er átt við að þau fái að nota rétt nafn og fornöfn og að fólk viðurkenni þau í réttu kyni, t.d. að foreldrar, systkini, vinir og kennarar noti rétt nöfn og fornöfn. Mörg hver breyta kyntjáningu sinni í takti við kynvitund sína en fyrir sum eru líkamlegar breytingar einnig mjög mikilvægar. Margar trans stelpur upplifa kynama en ekki allar. Kynami er djúpstæð vanlíðan sem tengist ýmist þeirra líkama og að hann sé ekki eins og þær vilja en einnig getur kynami verið til staðar þegar stuðningur og viðurkenning annarra á þeirra kynvitund er ekki til staðar. Fyrir aðrar trans stelpur geta þó breytingar sem fylgja kynþroska, eins og skeggvöxtur, dýpri rödd og aðrar líkamlegar breytingar, verið erfiðar. Í slíkum tilvikum geta hormónablokkerar skipt miklu máli. Þeir setja í raun TRANS kynþroskann á pásu eða koma alveg í veg fyrir ákveðnar breytingar ef meðferð hefst nógu snemma. Slíkt er í boði en til þess að komast í þannig meðferð þarf fyrst að eiga sér stað frumgreining, t.d. hjá sálfræðingi. Mörgum er slík meðferð lífsnauðsynleg, því að það getur reynst trans stelpum erfitt þegar líkaminn breytist ekki í þá átt sem þær vilja. Trans stelpur þurfa að bíða eftir því að verða orðnar nógu gamlar (oftast 16 ára eða eldri) til að fá svokallaða krosshormóna og geta þá tekið út kynþroska sem samsvarar þeirra kynvitund. Þetta er þó allt bundið því að trans stelpur njóti stuðnings frá forsjáraðilum sínum og komist nógu snemma í meðferð. Fyrir þær sem eru þegar byrjaðar á svokölluðum „karlkyns kynþroska“ geta hormónablokkerarnir sett hann á pásu en breyta honum ekki til baka. KYNSTADFESTING Ef trans kona fær krosshormón (í boði í fyrsta lagi frá 16 ára) mun líkaminn taka ýmsum breytingum, t.d. munu brjóst stækka og fitudreifing líkamans breytist. Það eru síðan alls konar meðferðir, aðgerðir og líkamlegar breytingar sem standa trans konum til boða. T.d. kynfæraaðgerð, að fjarlægja skeggvöxt, brjóstastækkun, minnkun barkakýlis og fleira. Sumt af þessu er kostnaðarsamt. Svo er gott að hafa í huga að það vilja ekki allar trans konur fara í þessar aðgerðir eða breytingar. Sumar vilja engar breytingar, sumar eru t.d. sáttar við sitt typpi og láta sér nægja breytingarnar sem krosshormónin hafa í för með sér. Það er engin ein rétt leið til að vera kona, hvort sem þú ert trans eða sís. Þetta ferli, ásamt allri biðinni getur verið ansi erfitt og getur þá verið mikilvægt að leita sér að ráðgjafa sem þekkir til trans málefna, finna stuðningshóp og jafnvel tala við aðrar sem hafa upplifað sömu stöðu. - Upplifun trans stelpna af kynþroska og líkamsbreytingum getur verið mjög ólík. Það er mismunandi hvort þær vilja gera líkamlegar breytingar eða ekki og hvað hentar hverri og einni best. STELPUR/KONUR
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=