PÍKAN Píkan gegnir mikilvægu hlutverki í líkamanum og getur verið uppspretta ánægju og vellíðanar. Það er gott að kynnast eigin líkama og læra hvernig hann bregst við. Afstaða þín til eigin líkama getur haft áhrif á sjálfsmynd þína, sjálfstraust og nánd. Það er ómögulegt að segja nákvæmlega hvenær fyrstu merki kynþroska koma fram hjá þeim sem eru með leg, en oft má sjá svipað mynstur innan fjölskyldna. Það getur líka verið misjafnt hvernig kynþroskinn sýnir sig fyrst. Þau sem munu fá brjóst taka oft fyrst eftir breytingum á þeim þar sem þau taka oft vaxtarkipp. Hár vaxa við kynfæri og undir höndum. Önnur finna fyrst fyrir skapsveiflum og meiri viðkvæmni eða byrja bara á túr einn góðan veðurdag. Það er líka mjög einstaklingsbundið í hvaða röð atburðir gerast eða hve hratt breytingarnar verða. Vaxtarverkir geta gert vart við sig og verið óþægilegir en það þýðir ekkert annað en að taka þeim með opnum huga. Sama má segja um aukna svitamyndun með tilheyrandi lykt sem getur oft verið ansi pirrandi en er eðlilegur hluti af ferlinu. Áður en mannkynið tók að stórum hluta upp eingyðistrú, þ.e. fór að trúa á einn guð eins og tíðkast hjá kristnum mönnum, múslimum, gyðingum og fleirum, var frjósemisdýrkun mjög útbreidd. Fólk gerði sér þá svokölluð reðurtákn, einhvers konar eftirmynd af typpi, sem gegndu oft mikilvægu hlutverki við trúarathafnir. Frjósemisdýrkendur í Ástralíu tilbáðu hins vegar kvenleg tákn, þ.e. eftirmyndir af píkum. Tákn móðurgyðjunnar Kunapipi var til dæmis móðurlíf og blótstaður hennar, þar sem athafnirnar fóru fram, var í laginu eins og leg. MOLI PUSSA PJALLA PJÁSA KUNTA ÖGN TUSSA VÖLVA KLOBBI SKÖP RIFA Hefur þú heyrt þessi orð? Finnst þér þau falleg eða ljót? Þekkir þú fleiri orð sem ekki eru á listanum? Hvar hefurðu heyrt þau? ORDID PÍKA Þegar við tölum um píku erum við að vísa til ytri og innri skapabarma, sníps og legganga. Einnig gæti þvagrásaropið talist til píkunnar – vegna staðsetningar þess – mitt á milli sníps og legops. Eins og um margt annað í lífinu hafa píkunni verið gefin fjölmörg nöfn í gegnum tíðina. Sum eru talin klúr en önnur eru hversdagslegri, sum fræðileg og enn önnur skáldleg eða forn. Hvaða orð finnst þér þægilegt að nota? Hver þeirra finnst þér flott og kraftmikil? Hver finnst þér ljót eða óþægileg? - - SKEID14 ER MAGNAD LÍFFÆRI! - PÍKA
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=