Félagsfærnifjör

8 1.2 Félagsfærni og hópastarf Hópastarf í skólastarfi Hópastarf er kjörinn vettvangur til að skapa umhverfi þar sem börn læra af reynslunni, bæði í gegnum fjölbreytt verkefni og með því að læra hvert af öðru. Hugmyndabankinn Félagsfærnifjör byggir því að miklu leyti á verkefnum sem henta í hópastarfi. Hvað er hópur? Hópur (e. group) eru einstaklingar sem eru meðvitaðir um að þeir tilheyri sömu heild. Hópur getur verið fjölskylda, bekkur, faghópur, íþróttafélag, vinahópur eða jafnvel heil þjóð. Hópar byggja á samskiptum, þar sem fyrst myndast tengsl innan hópsins og síðan þarf að viðhalda þeim. Samskipti geta verið ýmiss konar, til dæmis samræður, miðlun upplýsinga, samvinna, átök eða að læra af öðrum. Hópastarf sem námstæki Í hópastarfi fá börn tækifæri til að þróa og æfa fjölbreytta færni. Þegar krefjandi aðstæður koma upp gefst þeim tækifæri til að skoða hvað fór úrskeiðis, finna lausnir og leysa vandann. Umgjörð hópastarfs býður upp á bæði lærdóm og æfingu sem hjálpar til við að festa nýja hegðun í sessi. Leiðbeinendur og börn efla hæfni sína með því að veita hvert öðru uppbyggilega endurgjöf. Börnin hagnast mest ef þau fá nægan tíma til að nýta það sem þau læra í hópastarfi við raunverulegar aðstæður. Æfingar og verkefni í hópastarfi Í hópastarfi eru oft æfingar þar sem þátttakendur vinna saman að sameiginlegum markmiðum. Slíkar æfingar stuðla að jákvæðu andrúmslofti, ýta undir umræðu, hvetja til virkari þátttöku og styrkja samvinnu innan hópsins. Hópvinna eykur einbeitingu einstaklinga, hvetur og eflir samspil. Leikir og æfingar í hópnum efla reynslunám, þar sem þátttakendur vinna dýpra með hugsanir sínar og sjálfsskoðun verður markvissari. Félagsfærniþjálfun er einnig mikilvæg í hópastarfi. Hún hjálpar þátttakendum að þekkja eigin viðbrögð í raunverulegum aðstæðum, endurmeta þau og tileinka sér nýja, viðeigandi hegðun. Hópastarf veitir öruggt og uppbyggilegt umhverfi til þess að æfa samskipti og læra hvert af öðru. Æfingarnar í handbókinni byggja að mestu leyti á hópastarfi þó að sum verkefni séu ætluð til einstaklingsvinnu. Heimildir: Gladding, S. T. (2014). Groups: A counseling specialty (6th ed.). Pearson.Haukur Ingi Jónasson og Helgi Þór Ingason. (2012). Samskiptafærni: Samskipti, hópar og teymisvinna. Reykjavík: JPV. Jacobs, E. E., Schimmel, C. J., Masson, R. L., & Harvill, R. L. (2016). Group Counseling: Strategies and Skills (8th ed.). Boston, MA: Cengage Learning. Kaplan, L. S., & Owings, W. A. (2015). Introduction to the principalship: Theory to practice. New York, NY: Routledge.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=