Félagsfærnifjör

1. Um Félagsfærnifjör Hugmyndabankinn Félagsfærnifjör er 72 blaðsíður og skiptist í þrjá meginkafla og tólf undirkafla. 1. kaflinn beinist að leiðbeinendum og fjallar stuttlega um hvað felst í félagsfærni, hvers vegna hún er mikilvæg í hópkennslu og hvaða hlutverki leiðbeinendur gegna í slíku starfi. 2. kaflinn fjallar um kynningarleiki og ísbrjóta en þeir geta létt stemminguna í upphafi starfs og hvetja þátttakendur til virkrar þátttöku. Slíkt getur skapað traust og gott andrúmsloft í hópum. 3. kaflinn fjallar um gildi leikja í hópastarfi enda byggir hugmyndabankinn að verulegu leyti á leikjum. Í bókinni er lögð mikil áhersla á hópastarf en það er góð leið til að styrkja samheldni hópsins og skapa jákvætt andrúmsloft. Kynningarleikir geta létt stemninguna strax í upphafi starfsins og hvatt þátttakendur til virkrar þátttöku. Sama gildir um ísbrjóta, sem henta sérstaklega vel í byrjun hverrar kennslustundar í félagsfærni þar sem þeir, eins og nafnið gefur til kynna, „brjóta ísinn“ í samskiptum þeirra sem taka þátt. Í upphafi hvers kafla er kynnt til leiks sú færni sem á að þjálfa hvert sinn. Leiðbeinendur geta nýtt þær upplýsingar til að kynna efnið fyrir þátttakendum áður en hópavinnan hefst. Í framhaldinu fylgja verkefni með útskýringum og leiðbeiningum um framkvæmd, ásamt upplýsingum um hlutverk leiðbeinenda og hvaða áhöld þurfa að vera tiltæk. Með fjölbreyttum æfingum eins og til dæmis: leikritum, sýnikennslu, leikjum og hlutverkaleikjum er hægt að ná fram nýjum viðbrögðum frá þátttakendum. Í sumum köflum er jafnframt að finna ítarlegri fræðslu um ákveðin málefni sem miðar að því að dýpka skilning þátttakenda. Í hugmyndabankanum er lögð sérstök áhersla á þjálfun færniþátta eins og bein og óbein samskipti, vináttu, samvinnu og sjálfsstjórn. 6

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=