Félagsfærnifjör

5 Efnið byggir á leikjum og æfingum sem henta börnum á yngsta stigi grunnskóla en auðvelt er að aðlaga verkefnin fyrir eldri börn og unglinga. Í hugmyndabankanum er lögð áhersla á mikilvægi félagsfærni og hvernig hún styrkir tengsl barna og ungmenna við umhverfi sitt á jákvæðan hátt — til dæmis með því að sýna samkennd, taka virkan þátt í hópastarfi, hjálpa öðrum, eiga jákvæð samskipti og leysa vandamál. Æfingarnar í handbókinni miða að því að efla jákvæða hegðun. Það er einlæg von mín að þetta muni nýtast sem flestu fagfólki. Efniviður hugmyndabankans er fenginn úr ýmsum áttum: úr grunn- og framhaldsnámi mínu við Háskóla Íslands, starfi mínu sem frístundafræðingur hjá Reykjavíkurborg og úr öðru frístundastarfi sem ég hef sinnt. Þá sótti ég ýmsar æfingar í bækurnar Social skills activities for kids eftir Natasha Daniels, Social skills games for children eftir Deborah Plummer og The peers curriculum for school based professionals: Social skills training for adolescents with autism spectrum disorder eftir Elizabeth A. Laugeson. Einnig nýtti ég efni af veraldarvefnum og útfærði æfingarnar eftir því sem hentaði best þeim aldurshópi sem kennsluhandbókin miðar að. Með von um að efnið komi að góðum notum. Íunn Eir Gunnarsdóttir M.Ed. í tómstunda- og félagsmálafræði

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=