Félagsfærnifjör

58 Jósep segir Markmið: Hlustun, athygli og einbeiting. Áhöld: Ekkert. Leiðbeiningar: 1. Leiðbeinandi byrjar sem Jósep eða velur eitt barn til að vera Jósep og stjórna. 2. Jósep gefur skipanir og segir „Jósep segir...“ fyrir framan þær. Dæmi: “Jósep segir klappa“, „Jósep segir hendur á gólf“, „Jósef segir hendur á höfuð“… 3. Jósep reynir að villa um fyrir börnunum með því að sleppa því að segja: „Jósep segir...“ og segir t.d. í staðinn: „Jón segir hoppa“ Þau sem fara eftir skipuninni eru úr leik. 4. Sá sem stendur einn eftir vinnur leikinn. Umræðupunktar: · Hvað æfðum við í þessum leik? · Af hverju er mikilvægt að stjórna hugsunum og tilfinningum? Þjálfunarpunktar: · Hugsa áður en þú framkvæmir. · Stjórna tilfinningum. · Mistök eru eðlileg, reynum aftur.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=