59 Spurningasnúningur Markmið: Æfa sjálfsstjórn. Áhöld: Tilbúnar spurningar. Leiðbeiningar: 1. Tveir þátttakendur standa bak í bak í miðju rýminu. 2. Aðrir þátttakendur sitja og fylgjast með. 3. Leiðbeinandi les upp spurningu. 4. Ef annar þátttakandinn veit svarið má hann hoppa upp og snúa sér í hring til að gefa til kynna að hann vilji svara. 5. Sá sem bregst fyrst rétt við fær að svara spurningunni. 6. Á meðan þurfa þau sem sitja að hlusta og svara ekki jafnvel þó að þau viti svarið. 7. Að lokinni spurningu taka nýir þátttakendur við og þannig gengur leikurinn þar til allir hafa fengið að spreita sig. Umræðupunktar: · Var erfitt að kalla ekki upp svarið? Af hverju? · Hvernig fannst þér þegar einhver annar svaraði? · Af hverju er mikilvægt að fylgja leiðbeiningum?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=