Félagsfærnifjör

57 Stóladans Markmið: Kenna sjálfsstjórn. Áhöld: Stólar fyrir alla nema einn, tónlist. Leiðbeiningar: 1. Stólum er raðað í hring. Setan vísar út úr hringnum. 2. Þátttakendur ganga í hringi í kring um stólana á meðan tónlist er spiluð. 3. Þegar slökkt er á tónlistinni reyna allir að ná sæti. Það barn sem stendur eitt eftir án sætis er fallið úr leik. Nú er einn stóll fjarlægður og leikurinn endurtekinn þar til einn sigurvegari stendur eftir. Umræðupunktar: · Af hverju heldur þið að þessi leikur æfi sjálfsstjórn? · Hvað varstu að hugsa þegar tónlistin var í gangi / slökkt? · Hvernig leið þér þegar þú varðst úr leik? Hvað kemur mér í uppnám? Markmið: Vera meðvitaður um hvað kemur þér í uppnám. Áhöld: Miðar, blöð, litir. Leiðbeiningar: 1. Hvert barni skrifar á miða eitthvað sem kemur því í uppnám og setur í krukku. 2. Leiðbeinandi dregur einn miða í einu upp úr krukkunni og les upphátt það sem stendur á miðanum. 3. Leiðbeinandi spyr hópinn hvað væri hægt að gera til að koma í veg fyrir það uppnám sem nefnt er á miðanum. 4. Börnin teikna mynd af sjálfum sér þegar þau eru í uppnámi og skrifa eða teikna við hliðina hugmyndir af því sem gæti látið þeim líða betur.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=