56 Hvað er sjálfsstjórn? Markmið: Skilja mikilvægi sjálfsstjórnar. Áhöld: Ekkert. Leiðbeiningar: 1. Leiðbeinandi spyr þátttakendur um hvað sjálfsstjórn er og af hverju hún er mikilvæg. 2. Þátttakendur koma með hugmyndir sem leiðbeinandi skrifar á töflu eða veggspjald. 3. Leiðbeinandi tekur dæmi um aðstæður þar sem gott er að beita sjálfsstjórn (sjá dæmi hér að neðan). Leiðbeinandi biður eitt barn í einu að svar hvernig það myndi bregðast við í þessum aðstæðum eða öðrum aðstæðum sem leiðbeinandinn ákveður. Aðstæður: · Einhver kýlir þig í bakið. · Einhver sullar á bolinn þinn í matsalnum. · Þú dettur klaufalega í eltingaleik og allir sjá það. · Foreldrar þínir voru búnir að lofa þér að fara út í búð að kaupa nammi en hætta svo við það. · Einhver skemmir nýja dótið þitt. · Þú færð bananabrauð (sem þér finnst ekki gott) í nesti þegar búið var að lofa þér ostaslaufu (sem þér finnst mjög góð).
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=