Félagsfærnifjör

55 Sjálfsstjórn og mikilvægi hennar í samskiptum: Þegar við eigum í samskiptum við annað fólk er mikilvægt að koma fram við það af kurteisi, yfirvegun og geta brugðist við, með viðeiandi hætti, ef upp koma erfið samskipti. Sjálfsstjórn er því mikilvægur þáttur í samskiptafærni. Hvað er sjálfsstjórn? Sjálfsstjórn (e. self-control) er hæfni einstaklings til að stjórna, breyta eða halda aftur af eigin hugsunum, tilfinningum og hegðun í samræmi við markmið, áætlanir, reglur og viðmið. Þetta getur gerst bæði meðvitað og ómeðvitað. Hugtakið leggur áherslu á sjálfræði, þar sem einstaklingurinn tekur virkan þátt í að móta sinn eigin þroska. Tvær gerðir sjálfsstjórnar: 1. Tilfinningastjórn · Felur í sér hæfni til að stjórna upplifun og tjáningu eigin tilfinninga. · Tengist einnig stjórn á hegðun og hugsunum, sérstaklega þegar sterk tilfinningaleg áreiti, eins og keppnisskap, löngun eða reiði, koma fram. · Dæmi: Ef barn lærir að róa sig þegar það tapar í spilum, forðast það neikvæð viðbrögð sem gætu fælt vini frá. 2. Vitræn sjálfsstjórn · Snýst um stjórnun á minni, athygli og öðrum hugrænum ferlum. · Hjálpar við að taka ákvarðanir, skipuleggja, setja markmið og leysa vandamál á rökréttan hátt. · Tengist aðallega aðstæðum sem vekja lítil tilfinningaleg viðbrögð. Af hverju skiptir sjálfsstjórn máli? Sjálfsstjórn hefur mikil áhrif á þroska og velferð, allt frá námi til samskipta. Ef einstaklingur á erfitt með að stjórna tilfinningum sínum getur það valdið erfiðleikum í samskiptum. Tilfinningar leika stórt hlutverk í lífi okkar, og því er nauðsynlegt að læra að takast á við þær á farsælan hátt. Sjálfsstjórn hjá börnum og unglingum: · Mikilvægt er að börn og ungmenni læri að skilja og vera meðvituð um eigin tilfinningar. · Með þekkingu á eigin tilfinningum geta þau brugðist við á ábyrgan hátt, í stað ófyrirsjáanlegra skapsveiflna. · Börn ættu einnig að læra að velja hvaða tilfinningar eru viðeigandi í ákveðnum aðstæðum. Þetta stuðlar að því að byggja upp og viðhalda sterkum samböndum. Niðurstaða: Sjálfsstjórn er lykilatriði í samskiptum og persónulegum þroska. Hún gerir einstaklingum kleift að takast á við tilfinningar sínar og hegða sér á viðeigandi hátt í ólíkum aðstæður. Það styrkir bæði vellíðan þeirra sjálfra og tengsl þeirra við aðra. 3.5 Æfingar og leikir sem styrkja sjálfsstjórn

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=