54 Gulleggið Markmið: Samvinna. Áhöld: Stór afskorin lagnarör, hver bútur sirka 50 cm. 10–20 búta eftir stærð hópsins, litlir boltar, kassar. Leiðbeiningar: 1. Hópnum er skipt í tvö lið. 2. Hvert lið myndar röð. 3. Hver þátttakandi heldur á einu stuttu lagnaröri. 4. Fyrsti þátttakandi setur boltann á rörið sitt. 5. Boltinn á að rúlla frá einu röri yfir á næsta þar til hann fer í kassann sem er fyrir aftan aftasta barnið í röðinni. Kassinn má vera á borði, stól eða á gólfinu. 6. Enginn má snerta boltann með höndum. 7. Markmiðið er að koma boltanum frá A til B án þess að hann detti. 8. Ef boltinn dettur ákveður leiðbeinandi hvort liðið byrji aftur eða haldi áfram frá þeim stað sem boltinn datt. · Til að tryggja þátttöku allra má láta þann sem stendur næst kassanum hlaupa aftast í röðina eftir hverja umferð. Umræðupunktar: · Hvernig var að láta stýra sér? · Hvernig var að stýra? · Var auðvelt að fara að fyrirmælum? Þjálfunarpunktar: · Fylgjast með samskiptum. · Nota aðeins rödd til að leiðbeina.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=