53 Köngulóavefurinn Markmið: Samvinna. Áhöld: Garn. Leiðbeiningar: 1. Leiðbeinandi býr til stóran köngulóarvef, eins og göng, úr garni með því að fersta garnið í stóla, borð og hillur í stofunni. Einnig er hægt að búa til köngulóarvef úti á leikvelli eða á milli tjáa. 2. Börnunum er skipt í 3–4 manna hópa. 3. Markmiðið er komast í gegnum vefinn án þess að snerta hann. Hér má fara undir og yfir og leita allra leiða til að komast á endapunkt. 4. Ef þau snerta vefinn þurfa þau að byrja upp á nýtt. Umræðupunktar: · Hvernig gekk? · Hvað gekk vel? · Hvað gekk verr? · Hvað hefði mátt gera öðruvísi? Þjálfunarpunktar: · Fylgjast með samskiptum. · Öll koma með hugmyndir.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=