52 Músasprengjuskógur Markmið: Traust, samvinna, fara að fyrirmælum. Áhöld: Bækur eða skópör. Leiðbeiningar: 1. Setja „músasprengjur“ víðsvegar á gólfið. Geta verið bækur eða skór. 2. Tvö börn vinna saman: Annað er með lokuð augu en hitt leiðbeinir því gegnum skóginn án þess að það snerti sprengju. (Ákveða þarf hvort sá sem leiðbeinir megi leiðbeina með orðum eða leiði viðkomandi eða bæði.) 3. Skipta um hlutverk. Umræðupunktar: · Hvernig var að láta stýra sér? · Hvernig var að stýra? · Var auðvelt að fara að fyrirmælum? Þjálfunarpunktar: · Fylgjast með samskiptum og tón raddar. · Nota aðeins rödd til að leiða.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=