51 Pokasaga Markmið: Samvinna. Áhöld: 4–6 mismunandi hlutir fyrir hvern hóp. Leiðbeiningar: 1. Skiptið nemendum í 3–4 manna hópa. 2. Hver hópur fær poka með sex hlutum. Hlutirnir geta verið sokkur, blýantur, sprittkerti, nammibréf, lykill, blað, blýantur o.s.frv. 3. Hver hópur reynir að búa til stutta sögu þar sem hvert barn segir eina setningu um hlutina sem þau fengu í pokanum. 4. Hópurinn fær 15–20 mínútur til að semja og skrifa söguna. 5. Í lokin er hver saga lesin upp og hlutirnir sýndir. Umræðupunktar: · Voru allir sammála um söguna? · Fengu allir að segja setninguna sína? · Hvað gekk vel? Þjálfunarpunktar: · Fylgjast með samskiptum. · Öll fái að taka til máls.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=