50 Öll um borð Markmið: Samvinna og samskipti. Áhöld: Sippubönd, tónlist. Leiðbeiningar: 1. Búið til hring úr sippuböndum sem á að tákna skip. 2. Leikmenn ganga/dansa utan hrings. 3. Þegar tónlist stoppar: fara öll „um borð“. 4. Leiðbeinandi hrósar þeim fyrir ef vel gengur. 5. Leiðbeinandinn minnkar hringina smám saman og leikurinn er endurtekinn þangað til börnin komast engan veginn lengur inn í hringina. Umræðupunktar: · Hvernig gekk? · Fengu öll tækifæri til að taka þátt? · Gátuð þið hjálpað hvert öðru? · Hvernig finnst ykkur þegar aðrir hjálpa ykkur? Eða þið hjálpið öðrum? · Hvernig finnst ykkur þegar einhver gagnrýnir ykkur eða útilokar ykkur frá hringnum? · Hvernig finnst ykkur að vinna í hópi? Þjálfunarpunktar: · Hlusta á hvert annað. · Finna lausn þó allir séu ekki sammála.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=