Félagsfærnifjör

49 Lestarleikurinn Markmið: Samvinna og efla traust. Áhöld: Klútur, trefill til að binda fyrir augun. Leiðbeiningar: 1. Komið hópnum fyrir á rúmgóðu svæði þannig að allir fái nægilegt pláss. 2. 6 börn mynda „lest“. Barnið sem er aftast sér, hin eru öll með bundið fyrir augun. 3. Sá sem er aftast sendir hljóðlaus merki (klapp á hægri öxl = beygja til hægri, klapp á vinstri öxl = beygja til vinstri, báðar = ganga hraðar, toga = stoppa). 4. Markmið: komast á ákveðinn stað án árekstra. 5. Því næst er hægt að hafa markmiðið að komast á einhvern ákveðin stað. Kenna þannig börnunum að vinna saman og treysta hvert öðru. Þjálfunarpunktar: · Treysta hvert öðru. · Hlusta á leiðbeiningar og fylgja þeim nákvæmlega. Bak í bak Markmið: Samvinna. Áhöld: Ekkert. Leiðbeiningar: 1. Hvert barn finnur sér félaga af svipaðri stærð/þyngd. 2. Parið sest á gólfið með baki í bak og krækir höndum saman. 3. Þau reyna svo að standa upp án þess að krækjan losni. 4. Erfiðara: láta fjögur börn krækja höndum saman og standa upp. Þjálfunarpunktar: · Samvinna og traust til félaga.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=