Kubbaleikurinn Markmið: Að efla samvinnu. Áhöld: 50 duplo-kubbar. Leiðbeiningar: 1. Byrjað er á er að skipta hópnum í tvennt. Ef leikurinn gengur vel má láta allan hópinn leika saman. 2. Hvor hópur fær poka með 50 duplo-kubbum og einn tóman poka. 3. Markmiðið er að koma öllum kubbunum yfir í tóma pokann, einum í einu á sem skemmstum tíma. 4. Öll í hópnum þurfa að snerta hvern kubb áður en hann fer í pokann. Sá sem heldur á tóma pokanum má ekki snerta kubbana. 5. Hópurinn ákveður sjálfur verklagið og prófar aftur og aftur til að finna bestu leiðina. 6. Það er mjög áhugavert að hlusta og horfa á hvaða leikmenn hvetja hvern annan áfram og hverjir skamma hina fyrir að missa kubb til dæmis. Gott er að ígrunda á milli leikja og leyfa leikmönnum að prófa leikinn aftur og aftur þangað til það er komið gott jafnvægi á aðferðina. Umræðupunktar eftir leik: · Hvernig leið ykkur? · Hvernig leið þeim sem stjórnaði? Þjálfunarpunktar: · Treysta öðrum í hópnum. 48
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=