Félagsfærnifjör

Eggjafallafjör – björgum egginu saman Markmið: Að efla samvinnu. Áhöld: Egg, pappakassar, dagblöð, klósettpappírsrúllur, litir, garn og límband. Leiðbeiningar: 1. Skiptið hópnum þannig að það séu 2–6 börn saman í hóp. 2. Hver hópur fær eitt egg og efni til að búa til fallvörn. 3. Markmiðið er að vernda eggið svo það brotni ekki við fall úr nokkurri hæð. 4. Þegar allt er tilbúið skiptast hóparnir á og láta eggin detta til dæmis milli hæða eða ofan af borði. 5. Markmiðið er að eggið brotni ekki þegar það lendir. Umræðupunktar: · Hvernig gekk verkefnið? · Hvernig unnuð þið saman? · Hvað gekk vel? · Hvað hefði mátt gera betur? · Hlustuðuð þið á hvert annað? Þjálfunarpunktar: · Tryggja að öll taki þátt. · Vinnan á ekki að hvíla á einum aðila heldur þarf hópurinn að komast að sameiginlegri niðurstöðu. 47

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=