Líkaminn okkar Markmið: Að efla samvinnu. Áhöld: Maskínupappír, tússlitir, liti og límband. Leiðbeiningar: 1. Leiðbeinandi skiptir hópnum niður 2–6 manna hópa og lætur hópinn fá blað sem er stærra en börnin í hópnum. 2. Hópurinn setur pappírinn á gólfið og velur eitt barn til að leggjast á pappírinn. 3. Hin börnin teikna útlínur líkama þess sem liggur á pappírnum. 4. Hópurinn ákveður hver litar hvaða líkamspart og hvaða liti eigi nota. Umræðupunktar eftir leik: · Hvernig gekk verkefnið? · Fengu öll tækifæri til að vinna í verkefninu? · Fengu öll að segja sína skoðun? · Gátuð þið hjálpað hvert öðru? · Hvernig finnst ykkur þegar aðrir hjálpa ykkur eða þið hjálpið öðrum? · Hvernig finnst ykkur þegar einhver gagnrýnir ykkur? · Hvernig finnst ykkur að vinna í hópi? · Var sett út á ykkur? · Var ykkur hrósað? Þjálfunarpunktar: · Hlusta á hvert annað. · Finna lausn þó allir séu ekki sammála. · Það er allt í lagi að verða sár, reið eða leið. · Setja mörk með því að segja rólega: ,,Stopp, mér líkar ekki þegar þú talar svona‘‘. · Það má hunsa leiðinlegar athugarsemdir og ganga í burtu. · Segja hvernig okkur líður. Hvernig líður ykkur þegar einhver segir að hann sé frekja. Hvernig hefði verið hægt að segja þetta á jákvæðari hátt? 46
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=