Félagsfærnifjör

Samvinna barna er talin mikilvægur undanfari góðrar vináttu. Til að börn geti myndað náin og góð sambönd þurfa þau að vinna saman að sameiginlegum markmiðum. Samvinna birtist í hegðun á borð við að deila auðlindum, sýna tillitssemi gagnvart þörfum og tilfinningum annarra, veita aðstoð og leysa vandamál í sameiningu. Einkenni vináttu er að hún er valfrjáls – báðir aðilar geta slitið sambandinu hvenær sem er. Því þurfa báðir aðilar að leggja sitt af mörkum til að viðhalda sambandinu, vernda það og skapa sameiginleg markmið. Slík markmið geta falið í sér að njóta félagsskapar hvort annars, byggja upp traust og sýna hollustu. Þetta skapar sterka hvata til samvinnu milli vina. Þegar börn vinna saman dregur það úr átökum og samkeppni og minnkar þannig núning sem getur staðið í vegi fyrir sameiginlegum og persónulegum framförum. Börn sem búa yfir meiri samvinnufærni geta betur viðhaldið og eflt vináttu, auk þess sem samskipti þeirra verða dýpri og jákvæðari. Að lokum leiðir samvinna ekki aðeins til sterkari tengsla heldur einnig til meiri árangurs hjáhópnum, auk þess sem húng veitir börnum tækifæri til að þróa frekari félagsfærni og persónulegan þroska. 3.4 Æfingar sem byggjast á samvinnu 45

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=