Félagsfærnifjör

44 Ofurvináttutré Markmið: Hugsa um allt það sem vinir geta gert saman. Áhöld: Maskínupappír, litir, karton í nokkrum litum, skæri. Leiðbeiningar: 1. Hópurinn teiknar sameiginlega eitt tré á maskínupappír og klippir það út. 2. Síðan klippa börnin út laufblöð úr kartoninu og skrifa hugmyndir sínar um hvað ofurvinir gera. 3. Þegar öll hafa skrifað, sest hópurinn í hring og hengir laufblöðin á tréð, sem sýnir fjölbreyttar hugmyndir til að stuðla að góðri vináttu. Hlutverkaleikur Markmið: Að þátttakendur skilji muninn á góðri og slæmri vináttu og læri að breyta óviðeigandi hegðun í viðeigandi hegðun. Áhöld: Ekkert. Leiðbeiningar: 1. Leiðbeinandi velur fjögur börn til að leika atriði tengt óviðeigandi hegðun á meðan hin í hópnum horfa á. 2. Leiðbeinandi úthlutar hlutverkum (sjá dæmi hér að neðan) og börnin leika leikið. 3. Þátttakendur ræða hvað hefði verið hægt að gera öðruvísi. 4. Sá sem kemur með hugmynd að góðri vináttu tekur við hlutverkinu og atriðið er leikið aftur með viðeigandi viðbrögðum. Dæmi um aðstæður: · Þrír vinir að spila og einn svindlar. · Vinur sem er í vanda og vantar hjálp. · Vinur sem vill stjórna öllu. · Vinur sem lýgur. · Vinur sem er ókurteis.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=