Félagsfærnifjör

43 Heiti stóllinn Markmið: Að fá börninr til að segja sína skoðun og skilja að það er í lagi að vera ekki alltaf sammála. Áhöld: Stólar, staðhæfingar sjá dæmi hér að neðan. Leiðbeiningar: 1. Stólum er raðað í hring. 2. Leiðbeinandi les 10–15 staðhæfingar, t.d. „Íþróttir eru skemmtilegar“ eða „Það er gaman að leika úti.“ Þau sem eru sammála hverri staðhæfingu standa upp og skipta um sæti. Þau sem ekki eru sammála sitja áfram. 3. Þegar öll eru sest segja börnin frá því af hverju þau voru sammála, ósammála eða hlutlaus. 4. Leiðbeinandi tryggir að öll fái að tjá sig og að engin skoðun sé rétt eða röng. Dæmi um staðhæfingar: · Það er erfitt að vera einn með skoðun. · Góðir vinir rífast stundum. · Vinir eiga að passa upp á hvorn annan. · Til er vinátta sem er ekki góð. · Strákar eru betri vinir en stelpur. · Vinir eiga að skiptast á. · Þú átt að vera 100% heiðarlegur vinur. · Góðir vinir tala ekki illa um þig. · Vináttan getur orðið sterkari eftir rifrildi. Umræðupunktar: · Af hverju? · Hvernig þá? Þjálfunarpunktar: • Vináttan getur orðið sterkari eftir rifrildi ef þið náið að leysa úr því saman. • Það hafa allir rétt á sinni skoðun. • Mikilvægt að virða skoðanir annarra. • Við þurfum ekki alltaf að vera sammála. • Mikilvægt að vera heiðarleg í vináttu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=