42 Hvað geri ég sem góður vinur og hvað get ég gert betur? Markmið: Að finna eiginleika sem börnin eru góð í og hvar þau geta bætt sig. Áhöld: Blöð, litir og skæri. Leiðbeiningar: Hvert barn teiknar útlínur annarrar handar sinnar. Öðru megin á fingrnar skrifa þau hvað þau geri til að vera góður vinur en á hinum megin skrifa þau það sem þau vilja bæta. Umræðupunktar: · Hvernig gekk að finna eiginleika sem þið eruð góð í? · Hvernig gekk að finna eiginleika sem þið getið bætt ykkur í? · Hvernig ætlið þið að bæta ykkur? Þjálfunarpunktar: · Engin vinátta er fullkomin og allir geta gleymt sér stundum. · Mikilvægt er að reyna að vanda sig gera betur næst. · Allir hafa einhverja góða eiginleika og munum að það er hægt að æfa sig og læra að gera betur.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=