Félagsfærnifjör

41 Góð og vond vinátta Markmið: Greina muninn á milli góðrar og slæmri vináttu. Áhöld: Prenta út orð og klippa hvert orð út á miða. Sjá fylgiskjal 6. Leiðbeiningar: 1. Börnum er skipt í 2–3 manna hópa. 2. Hver hópur fær 10–20 orð og flokka þau eftir því hvort um er að ræða góða eða slæma vináttu. 3. Orðin eru skrifuð á blaði með T-uppsetningu (öðrum megin færu miðar sem tákna góða vináttu, hinum megin miðar sem lýsa slæmri vináttu). 4. Þegar allir hóparnir eru búnir koma sér saman um flokkun koma börnin og segja frá hvernig þau flokkuðu miðana. Umræðupunktar: · Af hverju er mikilvægt að leggja áherslu á góða eiginleika í vináttu? · Hvað gerist ef vinátta einkennist af slæmum eiginleikum? Þjálfunarpunktar: · Stundum er til vinátta sem er ekki góð fyrir þig. · Vinir eru heiðarlegir og tala fallega um hvorn annan. Dæmi um orð til að flokka: Fylgiskjal 6 · Góð vinátta: Hugrakkur, fyndinn, vingjarnlegur, dyggur, sanngjarn, kappsamur, hjálpsamur, ráðríkur · Slæm vinátta: Óheiðarlegur, þreytandi, svindlar, dónalegur, óþolinmóður, ókurteis, stjórnsamur, hunsa.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=