Félagsfærnifjör

Draumavinur Markmið: Að finna hvað liggur að baki góðrar vináttu. Áhöld: Pappír og litir. Leiðbeiningar: 1. Hvert barn hugsar um hvaða eiginleika draumavinurinn ætti að hafa. Hér er gott að hafa í huga að fjalla almennt um eiginleika góðs vinar en ekki vísa til tilktekinnar persónu. 2. Nemendur teikna mynd af draumavini og skrifa hvaða eiginleika hann hefur. 3. Þegar öll hafa lokið við myndina sína, kemur hópurinn saman í hring og hver segir frá sínum draumavini. Umræðupunktar: · Hvað merkir það að vera góður vinur? · Hvað myndi góður vinur segja eða gera? · Hvaða svip hefur góður vinur? · Hvaða eiginleika myndi góður vinur hafa? Þjálfunarpunktar: · Góðir vinir styðja hvor annan í góðu og illu. · Þeir hlusta á hvor annan, tala fallega hvor um annan og hafa gaman saman. · Góðir vinir styðja jákvæðar ákvarðanir, eru heiðarlegir og koma fram við vini sína eins og þeir vilja að aðrir komi fram við þá. 40

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=