39 Vinátta er einn mikilvægasti þátturinn í félagsþroska barna. Í gegnum vináttu læra börn að setja sig í spor annarra, sýna tillitssemi og þjálfa félagsfærni. Vinátta getur verið öflug forvörn gegn margvíslegum vanda, til dæmis einangrun, kvíða eða vanlíðan. Ekki eiga þó öll börn auðvelt með að eignast vini eða viðhalda vináttu. Þess vegna er mikilvægt að leiðbeinendur hjálpi þeim að skilja hvað einkennir góða vináttu og hvernig hægt er að rækta hana. Mismunandi tegundir vináttu Vinátta getur verið mismunandi að eðlisfari og þróast á ýmsa vegu. Þrjár algengar tegundir eru: 1. Gagnkvæm vinátta – Vinir sýna hvor öðrum hlýju, umhyggju og tryggð. Samskiptin eru jöfn og byggja á gagnkvæmum skilningi. 2. Einhliða vinátta – Aðeins annar aðilinn sýnir umhyggju og tryggð. Sambandið verður því ójafnt og getur reynst brothætt. 3. Aðstæðubundin vinátta – Vináttan myndast vegna aðstæðna, til dæmis í bekknum eða í sameiginlegu verkefni. Þegar aðstæður breytast, leysist sambandið oft upp. Að ræða við börn um þessar mismunandi gerðir vináttu getur hjálpað þeim að átta sig á því hvað gerir vináttu heilbrigða og hvenær hún getur orðið neikvæð og til þess fallin að brjóta aðra niður. Mikilvægi vináttu fyrir félagsþroska Góð vinátta hefur djúpstæð áhrif á sjálfsmynd og vellíðan barna. Þegar börn læra að rækta og viðhalda vináttu, styrkist hæfni þeirra til að leysa ágreining, sýna samkennd og setja mörk í samskiptum. Flest börn upplifa þó félagslegar áskoranir á einhverjum tímapunkti, svo sem rifrildi við vin, stríðni, útilokun úr hópi eða erfiðleika við að finna sinn stað í nýjum hópi. Þótt slíkar aðstæður geti verið sársaukafullar eru þær einnig eðlilegur hluti af félagslegu þroskaferli. Sum börn eiga auðvelt með að vinna sig í gegnum þessar aðstæður á meðan önnur þurfa meiri stuðning. Ef barn upplifir endurtekið höfnun, hunsun eða niðurlægingu getur það leitt til einmanaleika og félagslegrar einangrunar. Rannsóknir sýna að slík vandamál hverfa ekki endilega með aldrinum – þau geta þvert á móti aukist og haft áhrif á líðan og tengslamyndun síðar á ævinni. Hlutverk leiðbeinenda Leiðbeinendur og kennarar gegna lykilhlutverki í að efla vináttufærni barna. Með því að: · ræða reglulega um vináttu og samskipti · kenna börnum að bera kennsl á jákvæða og neikvæða hegðun · æfa lausnaleit og samkennd í leik og starfi · og skapa öruggt og hlýtt skólaumhverfi Góður vinur getur verið besta forvörnin gegn margvíslegum vandamálum. Þess vegna er mikilvægt að styðja börn í að eignast vini og halda í þá. 3.3 Æfingar og leikir sem þjálfa vináttu
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=