38 Húllafjör Markmið: Að kenna mikilvægi persónulegs rýmis og hvernig við virðum það í samskiptum. Áhöld: Húllahringir og tónlist. Framkvæmd: 1. Öll börnin dansa eða ganga um rýmið á meðan tónlist er spiluð. 2. Leiðbeinandi stoppar tónlistina og spyr: · „Vitið þið hvað persónulegt rými er?“ 3. Börnin fá húllahring sem táknar þeirra rými. 4. Þau halda áfram að dansa/ganga og passa að hringirnir snertist ekki. 5. Endið á umræðu um hvað gerðist þegar hringirnir rekast saman. Umræðupunktar: · Er í lagi að standa nálægt fólki? · Hversu langt frá á maður að standa? · Finnst öllum gott að láta snerta sig? · Megum við snerta alla? Þjálfunarpunktar: · Snerting getur sýnt ást og umhyggju, en getur líka verið óviðeigandi. · Hvernig við snertum aðra hefur mismunandi merkingu. Til dæmis að faðma einhvern getur þýtt væntumþykju en að klappa einhverjum á bakið getur þýtt að viðkomandi hafi staðið sig vel. Það er líka mögulegt að klapp á kinn eða bak virki niðurlægjandi eða óþægileg. · Við þurfum alltaf að virða mörk annarra.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=