Félagsfærnifjör

37 Leikþáttur: Svipbrigði og líkamsstaða Markmið: Að vera meðvitaðri um líkamsstöðu og svipbrigði og hvað þau gefa til kynna í samskiptum. Áhöld: · Miðar sem tilgreina ákveðnar aðstæður. Fylgiskjal 5. (t.d. að leika úti, horfa á bíómynd, versla í búð, tala í síma o.s.frv.). · Myndir með svipbrigðum og líkamsstöðu (t.d. gleði, sorg, reiði, undrun, ótti, krosslagðar hendur, hokinn, uppréttur). Fylgiskjal 3 og 4 . Framkvæmd: 1. Nemendur draga einn miða með svipbrigði/líkamsstöðu. 2. Þau draga síðan miða með aðstæðum sem þau gætu verið í. 3. Nemendinn leikur síðan atburð með svipbrigðum og líkamsstöðu sem gæti átt sér stað í þeim aðstæðum sem standa á miðanum. 3. Hinir reyna að lesa í svipbrigðin og segja hvað þau gætu þýtt. 4. Börnin ræða saman um niðurstöðurnar. Umræðupunktar: · Hvað segja svipbrigði okkur? · Hvað segir líkamsstaða? · Vitum við alltaf hvaða svip við erum með? · Hvort skiptir meira máli – orð eða svipbrigði? · Geti þið séð af líkamsstöðu ef einhver er reiður? Þjálfunarpunktar: · Við getum tjáð tilfinningar án orða. · Svipbrigði geta stangast á við það sem við segjum og breytt merkingu orðanna. · Gott er að kunna að lesa í svipbrigði annarra.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=