Félagsfærnifjör

Tónn raddar Markmið: Að nota viðeigandi raddblæ og raddstyrk í mismunandi aðstæðum svo skilaboðin skili sér rétt og samskiptin verði skýrari. Áhöld: Litlir miðar eða myndir með svipbrigðum (t.d. gleði, sorg, reiði, undrun, ótti og hræðslu. Fylgiskjal 3. Framkvæmd: 1. Byrjið á umræðu: Af hverju er mikilvægt að nota viðeigandi tón og styrk í mismunandi aðstæðum? 2. Skrifið hugmyndir á blað eða töflu. 3. Leiðbeinandi sýnir myndirnar og spyr: · „Hvaða tónn raddar passar við þessa aðstæður?“ „Af hverju?“ 4. Hópurinn æfir að segja setningar með mismunandi raddblæ (t.d. vinalega, reið, sorgmædd). Umræðupunktar: · Af hverju er mikilvægt að nota réttan tón í röddinni við ákveðnar aðstæður? · Hvernig getur röddin okkar verið? Þjálfunarpunktar: · Að stjórna röddinni er lykilfærni í samskiptum. · Röddin getur verið mjúk, venjuleg eða hávær. · Of há eða of lág rödd getur haft neikvæð áhrif á samskipti. · Við þurfum að laga tóninn að aðstæðum og umhverfi. 36

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=