Félagsfærnifjör

35 Að ná augnsambandi Markmið: Að læra að nota viðeigandi augnsamband í samskiptum. Með því að horfa í augun á þeim sem talað er við sýnum við virka hlustun og byggjum upp betri tengsl. Áhöld: Engin. Framkvæmd: 1. Skiptið hópnum upp í pör. 2. Annað barnið byrjar að tala og segir frá því sem því finnst skemmtilegast við sumarið, segir frá áhugamálum eða hvað það myndi gera ef það mætti ráða öllu. · Hitt á að horfa í augun á því sem talar allan tímann. 3. Síðan skipta þau um um hlutverk. · Það sem talar segir nú frá því einu atriði, en hitt á að forðast að horfa í augun og líta alls staðar annars staðar en í augu þess sem er að tala. 4. Að lokum ræðir hópurinn um það hvernig gekk. Umræðupunktar: · Hvernig leið þér þegar það var ekki horft í augun á þér á meðan þú varst að segja frá? · Hvernig leið þér þegar það var horft reglulega í augun á þér á meðan þú varst að segja frá? · Hvernig leið þér þegar hinn starði á þig allan tímann á meðan þú varst að segja frá? Þjálfunarpunktar: · Fólk „talar“ bæði með augunum og orðum. · Augnsamband sýnir áhuga og virðingu. · Það þarf ekki að stara – nóg er að horfa reglulega á manneskjuna. · Horfðu nógu oft til að hinn finni að þú sért að hlusta.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=