28 Sögustund Markmið: Æfa hlustun og vinna saman sem hópur. Áhöld: Pappír og blýantur eða tafla og töflutúss. Leiðbeiningar: 1. Börnin sitja saman í hring eða við borð. 2. Leiðbeinandi getur valið þema sögunnar, t.d. ferðalag, vinátta, dýrævintýri eða eitthvað sem tengist námsefninu. Einnig má fá hópinn til að koma sér saman um söguefnið eða leyfa börnum að velja það til skiptis. 3. Kennari byrjar söguna með einni setningu eða biður eitt barn að byrja hana. 4. Næsta barn í röðinni bætir við einni setningu. 5. Leikurinn heldur áfram þar til allir hafa lagt sitt af mörkum, eða þar til sögunni er lokið. 6. Kennari eða nemandi/nemendur skrifar söguna á blað eða töflu á meðan hún er sögð. Umræðupunktar: · Hvernig gekk að vinna saman? · Voruð þið að hlusta á hvert annað? · Var erfitt eða auðvelt að halda sögunni áfram? Þjálfunarpunktar: · Hlusta á aðra til að viðhalda samhengi í sögunni.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=