27 Handaflækja Markmið: Efla samskipti og samvinnu. Áhöld: Ekkert. Leiðbeiningar: 1. Börnin standa í hring. 2. Hvert barn réttir báðar hendur inn í hringinn og grípur í hendur tveggja annarra barna. 3. Nú hefur myndast handaflækja. 4. Börnin eiga að losa flækjuna án þess að sleppa höndum. 5. Börnin tala saman og vinna í sameiningu að því að leysa verkefnið. 6. Leiknum lýkur þegar myndast einn hringur eða fleiri minni hringir, eftir hópstærð. Umræðupunktar: · Hvernig gekk að vinna saman? · Voru allir að hjálpast að? · Var einhver sem stjórnaði? · Af hverju eru samskipti mikilvæg? Þjálfunarpunktar: · Samskipti hjálpa til við að leysa vandamál og ná sameiginlegum markmiðum.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=